Jólabjóradagatal.

3.499 kr.3.855 kr.

Það er alltaf gaman að gera eitthað nýtt, og fara út fyrir hinn daglega ramma.

Það hefur myndast hefð hjá sumum að gefa maka sínum 24 mismunandi jólabjóra til að smakka einn bjór á dag frá 1.-24 desember,

Það er hægt að gera leik með þessu með því að setja alla bjórana á borðið, snúa tjásneiðunum á hvolf og rugla þeim á borðinu.

Velja einn bjór úr safninu og velja trésneið af handahófi og það númer sem kemur upp er sett á viðkomandi bjór og svo koll af kolli.

Þegar búið er að velja allar trésneiðarnar af handahófi og setja á bjórana þá er jólabjóradagatalið tilbúið í ár og einn bjór drukkinn á dag í númeraröð.

Góða skemmtun og verði ykkur að góðu.

ATH: Jólabjóradagatalið fæst einnig í Hagkaupsbúðunum, Skeifunni, Kringlunni, Akureyri, Smáralind, Eiðistorg og Garðabæ.